Málefnaskrá fyrir borgarstjórnarkosningar 2010
Málefnaskrá VG í Reykjavík var kynnt á blaðamannafundi í gær. Öruggur leigu- og kaupleigumarkaður, fjölbreytt atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónusta og sorpflokkun við heimili fólks eru meðal þeirra málefna sem Vinstrihreyfingin grænt framboð setur á oddinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.


