Skúli hinn mennski í kosningamiðstöð UVG
Nóg verður um að vera í kosningamiðstöð UVG fimmtudagskvöldið 19. maí . Boðið verður uppá dýrindis kássu og hefst borðhald klukkan 19:00. Þá mætir Skúli mennski klukkutíma síðar og spilar magnaðan blús. Þá geta þeir sem misstu af útgáfupartýi Íllgresis um síðastliðna helgi nælt sér í eintak auk þess sem nýjustu barmmerki UVG verða á boðstólnum.


