Hollensk kjötsúpa OG Júróvisjón!!!
Á þriðjudaginn, 25. maí, kl. 19 ætlar Art Schalk að elda kjötbollusúpa að hætti Hollendingsins fljúgandi. Er þetta liður í fjáröflun Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í ár. Verðinu verður stillt í hóf – aðeins 1500 krónur fyrir súpu og drykk. Börn borða ókeypis. Einnig verður uppboð á öllum þeim undarlegum hlutum sem frambjóðendur hafa grafið upp í geymslum sínum.
Í kvöld fer líka fram undankvöld Júróvisjón þar sem Hera Björk syngur fyrir okkar hönd. Í kosningamiðstöð okkar að Suðurgötu 10 verður því boðið upp á ljúffengan málsverð og góða sam-Evrópska skemmtun af allra bestu gerð.
Fjölmennum – borðum vel og eigum góða stund saman.



