Rángarðyrkja Vinstri grænna í Reykjavík

25/05/2010 Engar athugasemdir

Að taka til í eigin bakgarði öðlaðist nýja merkingu þann dýrðarinnar dag annan í hvítasunnu. Frambjóðendur Vinstri grænna og sjálfboðaliðar ákváðu að nýta daginn til að taka til í blómabeði því sem blasir við út um glugga skrifstofu hreyfingarinnar að Suðurgötu 3. Maður getur jú bara svo og svo lengi horft upp á drulluna í svaðinu án þess að grípa til eigin ráða.

Sjálfboðaliðar og frambjóðendur létu ekki almennt kunnáttuleysi stöðva sig og fengu faglega ráðgjöf frá garðyrkjumanninum og landslagsarkitektnum í hópnum. Útkoman var yndisleg eins og sjá má af myndunum hér að neðan.

Þessi rángarðyrkja vakti verðskuldaða athygli og straumurinn í kosningamiðstöðina að Suðurgötu 10 jókst umtalsvert – enda var þar að finna nýsteiktar pönnukökur og heitt kaffi.

Svona var ástandið

Svona var ástandið

Svona var ástandið

Deila:
  • Facebook
  • Twitter
  • email
  • Print

Engar athugasemdir »

Engar athugasemdir

Skrá athugasemd

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin