Flokksráðsfundur
Stjórn VG hefur samþykkt að boða til flokksráðsfundar dagana 25.-26. júní 2010 á Grand Hóteli í Reykjavík. Að fundi loknum verður haldið í sumarferð austur fyrir fjall. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 22. júní.
Föstudagur 25. júní
17.00: Setning flokksráðsfundar, kynning ályktana og starfshópa. Yfirlit yfir úrslit sveitarstjórnarkosninga og myndun meirihluta.
17.30: Starfshópar taka til starfa.
-Sveitarstjórnarmál
-Flokksstarfið
-Endurmótun Íslands
19.30: Kvöldmatur
20.30: Almennar stjórnarmálaumræður.
22.30: Starfshópar taka að nýju til starfa.
Laugardagur 26. júní
9.00: Stuttar kynningar starfshópa og framhald almennra stjórnmálaumræðna.
12.00: Hádegisverður.
13.00: Kynning á Rannsóknaskýrslu Alþingis og aðgerðum í kjölfar hennar. Erindi og fyrirspurnir.
14.00: Afgreiðsla ályktana.
15.00: Fundi slitið.
Skipulag fundar: Fundarmenn eru beðnir um að skila ályktunum tveimur dögum fyrir fund eða 23. júní til framkvæmdastýru flokksins. Áhersla er lögð á að flokksráðsfundi er ekki ætlað allsherjar stefnumótandi hlutverk ólíkt landsfundi en hins vegar er ætlunin að halda sérstakt málefnaþing Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í haust þar sem fjallað verður ítarlega um málefnastöðu flokksins og framtíðar stefnumótun. Er það hugsað sem upptaktur að landsfundi sem haldinn verður 2011.
Skráning: Félagar þurfa að skrá sig til fundar fyrir 22. júní með því að senda línu um það til skrifstofunnar á netfangið vg@vg.is eða hafa samband í síma 552 8872.
Ferðakostnaður: Flokkurinn greiðir ferðakostnað ef ferðast er með sem hagkvæmustum hætti.
Útilega: Farið verður í útilegu á gosstöðvarnar í framhaldi af flokksráðsfundinum og gist í eina nótt. Skipað verður þétt í einkabíla og grillað saman um kvöldið. Nánari kynning verður haldin á flokksráðsfundinum en nauðsynlegt er að greina frá mætingu í ferðina fyrir 22. júní og segja þá jafnframt frá því hvort það sé laust pláss í bíl eða hvort óskað er eftir fari.


