'Ályktanir'

Ályktun umræðufundar VGR um rannsóknarskýslu Alþingis

09/05/2010 Engar athugasemdir

Reykjavík 9. maí 2010
Rannsóknarskýrsla Alþingis er vönduð, trúverðug og óvægin og hún afhjúpar spillta sambúð stjórnmála, stjórnsýslu og viðskiptalífs. Hún varpar ennfremur ljósi á einsleitni viðskiptalífsins, andvaraleysi þjóðarinnar á árunum fyrir efnahagshrunið og vanmáttugt eftirlitskerfi stjórnvalda með vafasömu sýndarhagkerfi.
Skýrslan er sjúkdómsgreining sem kallar á þjóðfélag sem setur manneskjuna ofar peningum; hún kallar á aukna siðgæðis- [...]

Eitthvað mun rotið í Reykjavíkurborg – ályktun frá stjórn VGR

05/05/2010 Engar athugasemdir

Reykjavík, 5. maí 2010
Eitthvað mun rotið í Reykjavíkurborg
- ályktun stjórnar VGR um rannsóknarskýrslu fyrir Reykjavík
Rannsóknarskýrslan um hrun íslensku bankanna leiddi í ljós alvarlega annmarka á starfsháttum vissra stjórnmálaflokka, embættismanna og þeirra viðskiptajöfra sem í daglegu tali eru nefndir útrásarvíkingar. Skýrslan leiddi ennfremur í ljós óeðlileg tengsl á milli þessara sömu hópa.
Vinstrihreyfingin-grænt framboð hefur alla tíð [...]

Ályktun VGR gegn einkaflugher

18/03/2010 Engar athugasemdir

Á félagsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík, var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Félagsfundur VG í Reykjavík haldinn 17. mars 2010 að Vesturgötu 7 í Reykjavík, tekur undir ályktanir Ungra vinstri grænna og Samtaka herstöðvaandstæðinga þar sem því er hafnað að hér á landi fái einkaflugher aðstöðu. Eftir því hefur hið vafasama fyrirtæki E.C.A. [...]

VGR vill að breytingar á kosningalögum fari fyrir stjórnlagaþing

27/01/2010 Engar athugasemdir

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík haldinn 12. nóvember 2009 telur best fara á því ef stjórnlagaþingi yrði falið að móta tillögur um ný kosningalög sem tekið gætu gildi fyrir næstu Alþingiskosningar.

Stjórnarformaður OR fer með rangt mál

27/01/2010 Engar athugasemdir

Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa VG í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vegna ummæla Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns Orkuveitunnar um að Orkuveitan sjái fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu, óvissu um Suðvesturlínur og orkuskatta sem valdi því að Orkuveitan geti ekki staðfest pöntun á Mitzubishi-aflvélum frá Japan og reyni nú að mæta tafakostnaði með hærra orkuverði frá Norðuráli.

Meirihlutinn í Reykjavík stingur athugasemdum um vatnsverndarsvæðin undir stól

27/01/2010 Engar athugasemdir

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík átelur að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur stingi undir stól athugasemdum nefnda borgarinnar um möguleg áhrif Suðvesturlínu á vatnsverndarsvæði borgarinnar.

VG leggur til 18.000 króna hækkun á fjárhagsaðstoð

27/01/2010 Engar athugasemdir

Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar, Drífa Snædal, lagði til að fjárhagsaðstoðin yrði hækkuð um 18.000 krónur.

Hart tekist á um fjárlagagerð hjá borginni

27/01/2010 Engar athugasemdir

Verið er að leggja lokahönd á fjárlögin hjá borginni þessa dagana og forgangsröðun meirihlutans kemur skýrt í ljós. Miskunnarlaus niðurskurður í menntamálum og velferðarmálum á meðan enn er gælt við framkvæmdir sem mega bíða betri tíma.

Hagræðing í skólum verður að vera í samráði við starfsfólk

27/01/2010 Engar athugasemdir

Fulltrúi Vinstri grænna í menntaráði getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar.

Ítarlegar tillögur Vinstri grænna til að bæta aðbúnað barna og tekjulágra í Reykjavíkurborg

27/01/2010 Engar athugasemdir

Þessar tillögur lagði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi fram í borgarráði í dag. Þeirra á meðal eru tillögur um að nýta hækkun útsvars til hækkunar fjárhagsaðstoðar og fræðslumála, systkynaafslátt á skólamáltíðir og svo mætti áfram telja. Hér að neðan má sjá hvernig VG vill forgangsraða upp á nýtt í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2010.