18/05/2010
Borgarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað það í dag að auglýsa eftir sérfræðingum í þriggja manna nefnd til að gera rannsókn á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og fól borgarráði að skipa í nefndina á fundi sínum 27. maí nk.
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi VG talaði fyrir tillögunni en borgarráð samþykkti nýlega tillögu hans um viðamikla rannsókn á stjórnsýslu, stjórnkerfi, og [...]
18/05/2010
Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna um árlega opna borgarafundi á vegum Reykjavíkurborgar þar sem kjörnir fulltrúar sitja fyrir svörum. Markmiðið með tillögunni er að bregðast við kröfu samfélagsins um lýðræðislegri stjórnunarhætti, að hvetja borgarbúa til aukinna áhrifa og þátttöku í stjórnmálaumræðunni og að styrkja samband kjörinna fulltrúa við umbjóðendur sína. Fundirnir eru [...]
27/01/2010
Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa VG í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vegna ummæla Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns Orkuveitunnar um að Orkuveitan sjái fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu, óvissu um Suðvesturlínur og orkuskatta sem valdi því að Orkuveitan geti ekki staðfest pöntun á Mitzubishi-aflvélum frá Japan og reyni nú að mæta tafakostnaði með hærra orkuverði frá Norðuráli.
27/01/2010
Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar, Drífa Snædal, lagði til að fjárhagsaðstoðin yrði hækkuð um 18.000 krónur.
27/01/2010
Verið er að leggja lokahönd á fjárlögin hjá borginni þessa dagana og forgangsröðun meirihlutans kemur skýrt í ljós. Miskunnarlaus niðurskurður í menntamálum og velferðarmálum á meðan enn er gælt við framkvæmdir sem mega bíða betri tíma.
27/01/2010
Fulltrúi Vinstri grænna í menntaráði getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar.
27/01/2010
Þessar tillögur lagði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi fram í borgarráði í dag. Þeirra á meðal eru tillögur um að nýta hækkun útsvars til hækkunar fjárhagsaðstoðar og fræðslumála, systkynaafslátt á skólamáltíðir og svo mætti áfram telja. Hér að neðan má sjá hvernig VG vill forgangsraða upp á nýtt í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2010.
27/01/2010
Á borgarstjórnarfundi 19. febrúar 2010 var tillaga VG um aðstoð við íbúa Haítí samþykkt. Tillagan er svona: “Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að veita sem samsvarar 100 kr. á hvern íbúa í Reykjavík til hjálparstarfs vegna náttúruhamfara og yfirstandandi hörmunga á Haítí.Verði Rauða krossi Íslands falin ráðstöfun fjárins. Fjármagnið komi af liðnum ófyrirséð í fjárhagsáætlun.”
17/08/2007
Samþykkt var samhljóða í leikskólaráði Reykjavíkurborgar þann 15. ágúst sl. tillaga Vinstri grænna um að grípa til aðgerða vegna manneklu á leikskólum borgarinnar. Nýtt verður heimild til greiðslu viðbótarlauna. Helga Björg Ragnarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í leikskólaráði lagði til að gripið verði til aðgerða og brugðist við því ástandi sem skapast hefur í leikskólum Reykjavíkurborgar [...]
04/06/2007
Vinstri græn sátu hjá í atkvæðagreiðslu um Frístundakort með eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Vinstri grænna harmar að ekki hafi náðst þverpólitísk samstaða um frístundakort. Vinstri græn telja þá skilmála sem nú liggja fyrir ekki tryggja jöfnuð með nægilega skýrum hætti, enda sé ekki tryggt að öll börn og unglingar í Reykjavík geti nýtt kortin til þess [...]