04/09/2010
Borgarmálaráðstefna VGR var haldin laugardaginn 4. september síðastliðinn að Suðurgötu 3. Ráðstefnan var vel sótt og fjörugar umræður spunnust um málefni borgarinnar. Staðan var tekin á málefnum innan 8 helstu ráða borgarinnar. Málefni Orkuveitu Reykjavíkur fengu jafnframt umtalsverða umfjöllun á fundinum. Ráðstefnugestum eru þakkaðar málefnalegar og gagnlegar umræður.
28/05/2010
Málefnaskrá VG í Reykjavík var kynnt á blaðamannafundi þann 10. maí síðastliðinn. Öruggur leigu- og kaupleigumarkaður, fjölbreytt atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónusta og sorpflokkun við heimili fólks eru meðal þeirra málefna sem Vinstrihreyfingin grænt framboð setur á oddinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.
Kosningaáherslur Vinstri grænna í Reykjavík
Forgangsmál Vinstri [...]
25/05/2010
Að taka til í eigin bakgarði öðlaðist nýja merkingu þann dýrðarinnar dag annan í hvítasunnu. Frambjóðendur Vinstri grænna og sjálfboðaliðar ákváðu að nýta daginn til að taka til í blómabeði því sem blasir við út um glugga skrifstofu hreyfingarinnar að Suðurgötu 3. Maður getur jú bara svo og svo lengi horft upp á drulluna í [...]
18/05/2010
Borgarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað það í dag að auglýsa eftir sérfræðingum í þriggja manna nefnd til að gera rannsókn á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og fól borgarráði að skipa í nefndina á fundi sínum 27. maí nk.
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi VG talaði fyrir tillögunni en borgarráð samþykkti nýlega tillögu hans um viðamikla rannsókn á stjórnsýslu, stjórnkerfi, og [...]
18/05/2010
Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna um árlega opna borgarafundi á vegum Reykjavíkurborgar þar sem kjörnir fulltrúar sitja fyrir svörum. Markmiðið með tillögunni er að bregðast við kröfu samfélagsins um lýðræðislegri stjórnunarhætti, að hvetja borgarbúa til aukinna áhrifa og þátttöku í stjórnmálaumræðunni og að styrkja samband kjörinna fulltrúa við umbjóðendur sína. Fundirnir eru [...]
17/05/2010
Það er hægt að leggja kosningabaráttunni lið á marga vegu m.a. með því að kaupa kaffikrúsir sem fara vel í hendi. Það er níðsterkt í þeim og svo skemmir ekki fyrir að merki Vinstri grænna prýðir þær. Svo er verðið hagstætt og sanngjarnt. Ein krús kostar 1.500 og fimm krúsir 5.500. Krúsirnar eru til sölu [...]
13/05/2010
Hagyrðingakvöldið heppnaðist afar vel. Þar stigu vaskir og hagmæltir félagsmenn og velunnarar VG á stokk og fóru ekki með hálf kveðnar vísur við frábærar undirtektir – myndir segja meira en mörg orð.
10/05/2010
Málefnaskrá VG í Reykjavík var kynnt á blaðamannafundi í gær. Öruggur leigu- og kaupleigumarkaður, fjölbreytt atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónusta og sorpflokkun við heimili fólks eru meðal þeirra málefna sem Vinstrihreyfingin grænt framboð setur á oddinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.
Kosningaáherslur Vinstri grænna í Reykjavík
Forgangsmál Vinstri grænna í Reykjavík á kjörtímabilinu
09/05/2010
Um 40 félagar úr VG komu saman í dag á Vesturgötu 7 og ræddu niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis í 5 hópum. Hervör Alma Árnadóttir stýrði fundinum sem var með svokölluðu þjóðfundarsniði. Fundinum var skipt í tvo hluta. Fyrir hádegi unnu hóparnir setningu sem lýsti viðbrögðum þeirra við rannsóknarskýrslunni. Setningarnar má sjá hér:
Hópur 1
Skýrslan afhjúpar spillta sambúð [...]
04/05/2010
Vinstri-græn í Reykjavík buðu til kaffisamsætis þann 1. maí, beint í kjölfar kröfufundar sem haldinn var á Austurvelli. Mikill fjöldi félaga lagði leið sína á Vesturgötu og var þar góður rómur gerður að ljúffengum kaffiveitingum. Elín Sigurðardóttir, sem skipar fjórða sæti á lista flokksins í Reykjavík, hélt ræðu, og þéttskipaður frambjóðendakór listans spilaði og söng.