30/08/2010
Borgarmálaráðstefna VG í Reykjavík verður haldin laugardaginn 4. september næstkomandi frá kl.13-16 að Suðurgötu 3. Fulltrúar VG í ráðum borgarinnar gera stuttlega grein fyrir stöðu mála og í kjölfarið fylgja almennar umræður um hvern málaflokk fyrir sig. Fundarstjóri er Kristján Ketill Stefánsson.
Eftirfarandi málaflokkar verða á dagskrá ráðstefnunnar:
Borgarráð, Sóley Tómasdóttir
Íþrótta- og tómstundaráð, Hermann Valsson
Velferðarráð, Þorleifur Gunnlaugsson
Menningar- [...]
21/06/2010
Stjórn VG hefur samþykkt að boða til flokksráðsfundar dagana 25.-26. júní 2010 á Grand Hóteli í Reykjavík. Að fundi loknum verður haldið í sumarferð austur fyrir fjall. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 22. júní.
Föstudagur 25. júní
17.00: Setning flokksráðsfundar, kynning ályktana og starfshópa. Yfirlit yfir úrslit sveitarstjórnarkosninga og myndun meirihluta.
17.30: Starfshópar taka til starfa.
-Sveitarstjórnarmál
-Flokksstarfið
-Endurmótun Íslands
19.30: [...]
25/05/2010
Á þriðjudaginn, 25. maí, kl. 19 ætlar Art Schalk að elda kjötbollusúpa að hætti Hollendingsins fljúgandi. Er þetta liður í fjáröflun Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í ár. Verðinu verður stillt í hóf – aðeins 1500 krónur fyrir súpu og drykk. Börn borða ókeypis. Einnig verður uppboð á öllum þeim undarlegum hlutum [...]
20/05/2010
Kosningamiðstöðin verður opin alla hvítasunnuhelgina frá 14-18. Á sunnudaginn ætlar Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi baka vöfflur fyrir gesti og gangandi og á mánudeginum ætlar Líf Magneudóttir í þriðja sæti að steikja pönnukökur. Allir velkomnir – það verður rjómi og sulta með veitingunum og kaffi og djús fyrir alla.
Kosningamiðstöðin er á Suðurgötu 10, 101 Reykjavík. Gult hús [...]
19/05/2010
Nóg verður um að vera í kosningamiðstöð UVG fimmtudagskvöldið 19. maí . Boðið verður uppá dýrindis kássu og hefst borðhald klukkan 19:00. Þá mætir Skúli mennski klukkutíma síðar og spilar magnaðan blús. Þá geta þeir sem misstu af útgáfupartýi Íllgresis um síðastliðna helgi nælt sér í eintak auk þess sem nýjustu barmmerki UVG verða á [...]
17/05/2010
Nú stendur yfir bæklinga-pörun að kosningamiðstöðinni Suðurgötu 10. Eins og alltaf vantar okkur fleiri hendur til að smeygja inn einblöðungi inn í kosningabæklinginn okkar. Þetta er stórskemmtilegt enda alltaf gott fólk á staðnum og heitt á könnunni. Sjálfboðaliðar geta mætt í kosningamiðstöðina í dag til klukkan 18 og síðan aftur á milli 21 og 23. [...]
16/05/2010
Ung Vinstri græn bjóða í súpu og spjall, mánudaginn 17. maí í kosningamiðstöðinn að Suðurgötu 10 í Reykjavík.
Allir velkomnir frá klukkan 18.
15/05/2010
Flóamarkaðurinn um síðustu helgi sló í gegn og við höfum hugsað okkur að endurtaka leikinn á morgun, sunnudaginn 16. maí frá kl. 14-16 í kosningamiðstöðinni Suðurgötu 10.
Fjölmennum og skemmtum okkur saman; tökum lagið, grillum og gerum kjarakaup.
Fatnaður, bækur, bakkelsi, plötur, leikföng, munir úr starfi Vg og annað spennandi til sölu. Svo má að sjálfsögðu leggja [...]
14/05/2010
Málþing um umhverfi, skipulag og samgöngur í borginni verður haldið laugardaginn 15. maí kl 14-16, í Sjóminjasafninu í Reykjavík að Grandagarði 8. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt og Sigrún Helga Lund frá samtökum um bíllausan lífstíl verða með framsögu. Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi VG stýrir fundi.
Allir velkomnir.
09/05/2010
Fjárhættuspil á kosningaskrifstofu Vinstri grænna á miðvikudagskvöldið, 12. maí.
Allir velkomnir, ekkert aldurstakmark.
Eyðið aleigunni í lomber á mettíma! Tapið rennur í kosningasjóð VG.
Loksins býðst Vinstri grænum aðgangur að peningahimnaríki.
Yfirkennari: Björg Eva Erlendsdóttir, frambjóðandi í 7. baráttusæti.
Sérkennarar: Freyr Rögnvaldsson; Kristján Ketill Stefánsson og Edda Pálsdóttir.
Fjárhættuspil á kosningaskrifstofu Vinstri grænna á miðvikudagskvöldið, 12. maí.
Allir velkomnir, [...]