Lög
Lög Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík.
1. Félagið heitir Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Reykjavík. Heimili og varnarþing eru í Reykjavík.
2. Félagar eru jafnframt félagsmenn í stjórnmálasamtökunum Vinstri hreyfingunni – grænu framboði og eru öll markmið og skilyrði í samræmi við lög þeirra.
3. Aðalfundur skal haldinn árlega í septembermánuði. Til aðalfundarins skal boða með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Á aðalfundi skulu bornir upp ársreikningar og skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. Reikningsárið fylgir starfsári stjórnar. Aðalfundur tekur afstöðu til lagabreytinga, og skulu þeir berast stjórn með viku fyrirvara. Aðalfundur ákveður upphæð félagsgjalds. Aðalfundur kýs formann, sex stjórnarmenn að auki sem skipta með sér verkum og tvo til vara, þ.e. fyrsta og annan varamann, og tvo skoðunarmenn reikninga. Á aðalfundi skulu kosnir fulltrúar á landsfund í samræmi við lög landssamtakanna.
4. Félagsfundi skal að jafnaði halda ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári og oftar ef a.m.k. fjórðungur félagsmanna óskar þess.
5. Stjórn fer með málefni hreyfingarinnar milli aðalfunda. Stjórn tilnefnir uppstillingarnefnd eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir hverjar kosningar. Framboðslistar skulu bornir undir félagsfund.
6. Verði félagið lagt niður skulu eignir þess renna til líknarstarfssemi að vali síðustu stjórnar.
7. Lög þessi öðlast þegar gildi.


